Ný sérlyfjaskrá
Sérlyfjaskrá er leitarvél Lyfjastofnunar sem inniheldur upplýsingar um öll markaðsett lyf á Íslandi. Í lok ársins leit ný, uppfærð sérlyfjaskrá dagsins ljós.
Vefurinn var endurhannaður þannig að hann þjóni betur notendum snjalltækja.
Meðal nýjunga í sérlyfjaskrá má nefna:
- frekari upplýsingar um markaðsleyfi lyfs
- upplýsingar um tilkynntan lyfjaskort, ásamt hlekk á lyfjaskortsfréttir á lyfjaspjaldi viðkomandi lyfs
- upplýsingar um sambærileg lyf og verð þeirra, ódýrustu pakkningarnar fá sérstaka merkingu
Leitarvélin í hinni nýju sérlyfjaskrá er mun öflugri en í þeirri fyrri og býður upp á ítarlega síunarmöguleika. Þannig er hægt að taka út ýmiskonar lista eftir því hvaða síunarskilyrði eru valin.
Sem fyrr segir inniheldur sérlyfjaskrá upplýsingar um öll markaðssett lyf á Íslandi og nær þ.a.l. ekki til undanþágulyfja.
Vissir þú að sérlyfjaskrá inniheldur...
- upplýsingar um öll markaðssett lyf á Íslandi
- öryggis- og fræðsluefni fyrir lækna og sjúklinga
- upplýsingar um tilkynntan lyfjaskort með ráðleggingum
- upplýsingar um ódýrasta valkostinn þegar við á