Endurbætt húsnæði
Starfsemi Lyfjastofnunar fór fram á Eiðistorgi allt frá því hún tók fyrst til starfa, árið 2000, fram til sumarsins 2010 þegar nýtt húsnæði að Vínlandsleið 14 var tekið í notkun.
Snemma árs 2021 var húsnæðið orðið of lítið fyrir starfsemina og ýmsar mögulegar lausnir kannaðar. Meðal þess sem kom til greina var að flytja í annað húsnæði. Engir hentugir kostir fundust og var því ákveðið að halda starfseminni áfram á Vínlandsleið. Í leiðinni var ákveðið að nýta fermetrafjölda húsnæðisins enn betur með því að breyta húsnæðinu í verkefnamiðað umhverfi með opnum vinnurýmum. Það er nokkur breyting frá fyrra fyrirkomulagi þar sem flestir starfsmenn höfðu skrifstofur fram til þessa, ýmist einir eða með öðrum.
Í lok árs 2021 var önnur hæð húsnæðisins tæmd vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Framkvæmdir á annarri hæðinni hófust í janúar árið 2022 og lauk þeim í júní sama ár. Þá tóku við framkvæmdir á þriðju hæð frá júní til loka ársins. Í lok árs var hægt að flytja inn á þriðju hæð hússins og þar með nýta báðar hæðarnar eftir framkvæmdirnar.
![Horft inn ganginn á þriðju hæð, austur áður en hafist var handa við breytingarnar](https://images.prismic.io/lyfjastofnun-arsskyrsla/98da7ec9-d212-488a-acb0-1aea723a6999_237960572_220097510132487_7451288310013587316_n.jpg?auto=format%2C+compress&w=560&h=380)
![Húsgögn flutt](https://images.prismic.io/lyfjastofnun-arsskyrsla/b84a2414-cfe6-42a9-baec-458239ee3355_r%C3%BAnar.jpg?auto=format%2C+compress&w=560&h=380)
![Framkvæmdir hafnar á annarri hæð í desember 2021](https://images.prismic.io/lyfjastofnun-arsskyrsla/7b0a2776-c966-44be-b4e9-466b70229d0d_269607833_603364257615446_4982061280365139398_n.jpg?auto=format%2C+compress&w=560&h=380)
![Húsgögn flutt](https://images.prismic.io/lyfjastofnun-arsskyrsla/58c44179-7c42-4901-a6fd-2627be28ad21_317846307_823275262291010_3751777835045651036_n.jpg?auto=format%2C+compress&w=560&h=380)
![Skjáir bíða þess að verða fluttir niður á aðra hæð](https://images.prismic.io/lyfjastofnun-arsskyrsla/d44144dd-983e-4e84-a448-d8ae2dca4bdc_290783149_718219289463275_7121526454692335194_n+%281%29.jpg?auto=format%2C+compress&w=560&h=380)
![Stólar komnir á aðra hæð](https://images.prismic.io/lyfjastofnun-arsskyrsla/3269d807-9bac-4c73-99f0-1be969b9becd_290967888_718245256127345_2745924205596757210_n.jpg?auto=format%2C+compress&w=560&h=380)
![Önnur hæðin farin að taka á sig mynd](https://images.prismic.io/lyfjastofnun-arsskyrsla/63d64cb1-4fe0-4fc7-ae31-43ddd1a0a8e1_312945929_823456595606210_2550326297601852361_n.jpg?auto=format%2C+compress&w=560&h=380)
![Matsalurinn á þriðju hæð tekur á sig mynd eftir breytingar](https://images.prismic.io/lyfjastofnun-arsskyrsla/b9f7c604-82f2-4e8a-b8ba-9fd4db90d9d6_312754118_823456508939552_5619065104843452527_n.jpg?auto=format%2C+compress&w=560&h=380)
Nýtt húsnæði býður upp á góða möguleika til samvinnu af ýmsu tagi þar sem nægt framboð er af fundarherbergjum. Þá er fjöldi bókanlegra og óbókanlegra næðisrýma í boði, sem og minni afdrepa sem henta fyrir styttri símtöl o.þ.h.
- 0Fundarherbergi
- 0Næðisrými
- 0Símaklefar